![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
05. júlí 2021
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_9.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2021 er nú aðgengileg hér á vef bankans ásamt ítarefni.
Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður en nefndin hefur reglulega komið fyrir efnahags- og viðskiptanefnd. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi, síðast 17.-18. maí 2021. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2021.
Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis