09. júlí 2021
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, þátttakandi í pallborðsumræðum um loftslagsmálin hjá Toronto Centre
Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabankans, tók þátt í pallborðsumræðum um loftslagsmálin hjá Toronto Centre nýlega ásamt Tomás Soley sem er forstjóri vátryggingaeftirlits Kosta Ríka. Umræðunum var stýrt af Babak Abbaszadeh, forseta og framkvæmdastjóra Toronto Centre. Yfirskrift pallborðsumræðnanna var: Leiðin á 26. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna: Hvernig geta seðlabankar og fjármálaeftirlit stutt við áætlanir landa sinna vegna hlýnunar jarðar?Toronto Centre er sjálfstæð stofnun sem er ekki rekin í ábataskyni. Miðstöðin leggur áherslu á að árangursríkur lagarammi varðandi fjármálaeftirlit er nauðsynleg undirstaða heilbrigðs og stöðugs efnahags. Markmið stofnunarinnar er meðal annars að styðja við fjármálastöðugleika og fjármálaþjónustu sem undirstöðu með því að bjóða eftirlitsaðilum, ekki síst í þróunarlöndum, upp á hagnýt námskeið.
Sjá hér: Upptaka af pallborðsumræðunum.