![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
22. júlí 2021
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2021
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_6.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2021 dagsett 22. júní sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.
Dráttarvextir verða því áfram óbreyttir 8,75% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2021.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2021:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,45%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,30%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2021