18. ágúst 2021
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2021
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 07/2021 dagsett 21. júlí sl. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, er því óbreyttur 1,75%.
Dráttarvextir verða því áfram óbreyttir 8,75% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2021.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2021:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 3,45%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,90%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,30%