02. september 2021
Varaseðlabankastjóri með erindi hjá Samiðn og FA
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti föstudaginn 27. ágúst erindi hjá Samiðn – sambandi iðnfélaga. Hún flutti einnig erindi 1. september síðastliðinn á félagsfundi hjá Félagi atvinnurekenda.
Kynning Rannveigar fjallaði um stöðu efnahagsmála í ljósi heimsfaraldurs, efnahagshorfur og forsendur fyrir nýlegri vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.
Hér má finna kynningu sem Rannveig studdist við á fundunum:
Kynning Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu, hjá Samiðn 27. ágúst