![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
17. september 2021
Seðlabankastjóri með erindi á Reikningsskiladeginum
![Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_portret_gray-1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti erindi á Reikningsskiladeginum hjá Félagi löggiltra endurskoðenda í dag. Erindi Ásgeirs fjallaði um nýjan Seðlabanka eftir sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Í erindinu snerti Ásgeir meðal annars á eftirlitshlutverki Seðlabankans, stöðu þjóðarbúsins og inngripum bankans í ljósi heimsfaraldurs.
Glærur sem Ásgeir studdist við má nálgast hér: Nýr Seðlabanki – Erindi seðlabankastjóra á Reikningsskiladeginum 17. september 2021.