![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
08. október 2021
Varaseðlabankastjóri með erindi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga
![Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_rannveig_minni.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, hélt fimmtudaginn 7. október erindi um stöðu og horfur í efnahagsmálum á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Erindi Rannveigar bar heitið Hagstjórn í heimsfaraldri – Hvað tókst vel og hverjar eru horfurnar? Í erindinu fjallaði hún m.a. um áhrif heimsfaraldursins á efnahag landsins, viðbrögð hins opinbera og hvernig stjórntækjum Seðlabankans var beitt.
Kynningarglærur sem Rannveig nýtti sér til stuðnings má nálgast hér: Hagstjórn í heimsfaraldri – Hvað tókst vel og hverjar eru horfurnar?
Hægt er að horfa á upptöku frá fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga hér. Erindi Rannveigar byrjar á einni klukkustund og mínútu 41.