20. október 2021
Fundargerð peningastefnunefndar 4. til 5. október 2021
Í samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands er hér birt nýjasta fundargerð nefndarinnar, en fundargerð er birt tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt.
Hér birtist því fundargerð fundar peningastefnunefndar 4.-5. október 2021, en á honum ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum og ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum.
Sjá hér: Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands 4.-5. október 2021 (104. fundur). Birt 20. október 2021
Sjá hér svæði fyrir fundargerðir peningastefnunefndar og fleiri upplýsingar um nefndina: Peningastefnunefnd