29. október 2021
Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar 27. – 28. september 2021
Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 27. – 28. september 2021 hefur verið birt hér á vef Seðlabankans. Nefndarmenn ræddu meðal annars um stöðu og horfur fyrir fjármálastöðugleika, stöðu efnahagsmála, þróun á innlendum fjármálamörkuðum, stöðu og áhættu í fjármálakerfinu og í rekstri einstakra fjármálafyrirtækja, fjármálainnviði, netöryggi, kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki, fjármálasveifluna, eiginfjárauka vegna kerfislegs mikilvægis, sveiflujöfnunarauka og greiðslubyrðarhlutfall fasteignalána.
Sjá hér: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Fundur 27. - 28. september 2021 (9.fundur). Birt 29. október 2021.
Sjá nánari upplýsingar um nefndina hér.