04. nóvember 2021
Niðurstaða athugunar á fyrirkomulagi áhættustýringar hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf vettvangsathugun hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna í júní 2021. Markmiðið var að kanna fyrirkomulag áhættustýringar og eftirlitskerfi Lífeyrissjóðs verzlunarmanna með þeim þáttum sem lífeyrissjóðurinn hefur skilgreint sem fjárhagslega áhættu, sbr. 29. gr. og 36. gr. e laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Þá var í athuguninni einnig byggt á ákvæðum reglugerðar um eftirlitskerfi með áhættu lífeyrissjóða.Sjá nánar: Niðurstaða athugunar á fyrirkomulagi áhættustýringar hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna