![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
12. nóvember 2021
Breytingar á reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_haust_1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Með breytingunum er 4. gr. reglnanna breytt á þann veg að við útreikning á hámarki greiðslubyrðar fasteignalána er lánveitenda heimilt að miða við lán með jöfnum greiðslum, óháð greiðslufyrirkomulagi samkvæmt hlutaðeigandi samningi um fasteignalán.
Breytingarnar eru gerðar með nýjum reglum nr. 1268/2021 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda, sem munu koma í stað reglna nr. 1077/2021 um sama efni. Reglurnar eru birtar í Stjórnartíðindum í dag og taka gildi 1. desember 2021.