13. desember 2021
Skýrsla nefndar um úttekt á fastanefndum Seðlabanka Íslands
Nefnd sem falið var að gera úttekt á reynslunni af starfi peningastefnunefndar, fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands frá gildistöku nýrra laga um bankann frá ársbyrjun 2020 hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni. Skýrslan er unnin með vísan til VI. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 92/2019 um Seðlabanka Íslands.
Sjá frétt forsætisráðuneytis hér:
Skýrsla nefndar um úttekt á fastanefndum Seðlabankans
Sjá skýrsluna sjálfa hér:
Úttektarnefnd. Reynslan af starfi peningastefnunefndar, fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands 2020-2021.