14. janúar 2022
Seðlabanki Íslands birti í dag þrjár fréttir sem tengjast viðskiptum við mótaðila bankans
Seðlabanki Íslands birti í dag þrjár fréttir sem tengjast viðskiptum við mótaðila bankans. Í fyrsta lagi að lausafjárgluggi verður opnaður og sérstök tímabundin lánafyrirgreiðsla vegna COVID-19 verður felld niður, í öðru lagi frétt um að bundin innlán til 7 daga verða innleysanleg og í þriðja lagi verður reglum um viðskiptareikninga breytt.
Fréttirnar eru eftirfarandi:
- Opnun lausafjárglugga og niðurfelling sérstakrar tímabundinnar lánafyrirgreiðslu vegna Covid
- Bundin innlán til 7 daga verða innleysanleg
- Breytingar á reglum um viðskiptareikninga