![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2022
![Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki-esja_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2022 dagsett 19. janúar sl. þar sem að grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, hækkaði sem nam meginvaxtahækkuninni er tilkynnt var hinn 9. febrúar sl. úr 2,75% í 3,50%. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 10,50% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2022.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða aftur á móti óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2022:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,15%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 1,50%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,77%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2022