02. mars 2022
Seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, mæta á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis fimmtudaginn 3. mars klukkan 09:10.
Á fundinum munu þau gera grein fyrir skýrslu peningastefnunefndar fyrir síðari hluta ársins 2021 til Alþingis.
Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir síðari hluta árs 2021
Streymt verður frá fundinum á vef Alþingis: Vefur Alþingis