![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
07. mars 2022
Leiðrétting á tölum um gjaldmiðlaskiptingu í erlendri stöðu þjóðarbúsins
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_12.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Tafla með gjaldmiðlaskiptingu sem birt var annan þessa mánaðar með upplýsingum um erlenda stöðu þjóðarbúsins var leiðrétt sjöunda þessa mánaðar. Fyrri tafla innihélt ranga gjaldmiðlaskiptingu á eignum og skuldum í beinni fjárfestingu í lok árs 2021. Leiðréttingin hafði ekki áhrif á samtölur eða aðrar tölur tengdar erlendri stöðu þjóðarbúsins.
Sjá nánar hér: Erlend staða þjóðarbúsins.