![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
25. mars 2022
Varaseðlabankastjóri með erindi um seðlabankarafeyri
![Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri](/library/Ljosmyndir_ISL/Starfsfolk_ISL/sedlabankinn_rannveig_minni.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti miðvikudaginn 23. mars, erindi á málstofu á vegum viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Málstofan bar titilinn Framtíð peninga: Seðlabankarafeyrir (CBDC).
Í erindi sínu fjallaði Rannveig um hvað seðlabankarafeyrir er, mismunandi markmið með útgáfu seðlabankarafeyris, valkosti og álitamál við slíka útgáfu.
Hér má finna kynningu sem Rannveig studdist við á fundinum: Framtíð peninga: Seðlabankarafeyrir (CBDC)