![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
07. júní 2022
Viska Digital Assets ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_10.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Visku Digital Assets ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 1. júní 2022, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.