![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
09. júní 2022
Seðlabanki Íslands hefur uppfært lista yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabankinn_myndir_af_husi_mars2020-1.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa. Það er gert í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1420/2020, m.t.t. aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Samkvæmt reglugerðinni skal fjármálaeftirlitið halda lista yfir þau starfsheiti hér á landi sem teljast til háttsettra opinberra starfa, birta opinberlega á vefsvæði bankans og uppfæra eigi sjaldnar en tvisvar á ári.
Á listanum koma fram starfsheiti og nafn stofnunar, samtaka, fyrirtækis eða stjórnmálaflokks, eftir því sem við á. Listinn byggir á ákvæðum reglugerðarinnar og á upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og stjórnmálaflokkum sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi, sbr. 11. gr. reglugerðarinnar.
Að þessu sinni er aðeins um að ræða breytingar á lista yfir fyrirtæki í eigu íslenska ríkisins, sbr. 8. gr. reglugerðar nr. 1420/2020.
Nánari upplýsingar er að finna hér: Listi yfir starfsheiti sem teljast til háttsettra opinberra starfa.