![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
18. nóvember 2022
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2022
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_16.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2022 dagsett 19. október sl. Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,50% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2022.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2022:
• Vextir óverðtryggðra útlána 7,25% - (6,25%)
• Vextir verðtryggðra útlána 2,35% - (2,10%)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 4,83% - (4,17%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2022