23. febrúar 2023
Varaseðlabankastjóri með erindi hjá BHM
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti á dögunum erindi fyrir formenn, framkvæmdastjóra og starfsfólk aðildarfélaga BHM.Í kynningu sinn fjallaði Rannveig um nýlega vaxtaákvörðun peningastefnunefndar, verðbólguhorfur og efni ritsins Peningamála sem kom út sama dag og vaxtaákvörðunin var kynnt. Hún ræddi meðal annars hvað hefði breyst á milli síðustu funda peningastefnunefndar, stöðu alþjóðlegra efnahagsmála og ytri skilyrði, innlent raunhagkerfi, verðbólgu og miðlun peningastefnunnar.
Hér má sjá kynninguna sem Rannveig studdist við á fundinum:
Kynning Rannveigar Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóra peningastefnu hjá BHM.