27. febrúar 2023
Virkir eignarhlutir í Ísafold Capital Partners hf.
Hinn 23. febrúar 2023 komst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands að þeirri niðurstöðu að Misgengi ehf. væri hæft til að fara með allt að 20% beinan, virkan eignarhlut í Ísafold Capital Partners hf., og að Elmar Eðvaldsson væri hæfur til að fara með jafn stóran óbeinan, virkan eignarhlut í síðarnefnda félaginu, sbr. 16. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, og VI. kafla laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.Sama dag komst fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að Dalgeiri ehf. væri einnig hæft til að fara með allt að 20% beinan, virkan eignarhlut í Ísafold Capital Partners hf., og að Brjánn Guðni Bjarnason væri hæfur til að fara með jafn stóran óbeinan, virkan eignarhlut í síðarnefnda félaginu, sbr. ofannefnd lagaákvæði.