![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
20. mars 2023
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2023
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_13.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur ekki breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2023 dagsettri 20. febrúar sl. þar sem að meginvextir bankans hafa haldist óbreyttir síðan þá. Dráttarvextir haldast því einnig óbreyttir og verða áfram 14,25% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2023.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2023:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 7,75% - (hækka úr 7,50%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,60% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 5,17% - (hækka úr 5,00%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2023