18. apríl 2023
Varaseðlabankastjóri peningastefnu á fundi OECD um viðbrögð peningastefnu og ríkisfjármála við áföllum
Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, flutti ræðu á 15. árlega fundi vinnuhóps OECD fyrir fulltrúa fjárlagagerðar þjóðþinga og sjálfstæðra ríkisfjármálastofnana sem haldinn var á Íslandi 13. til 14. apríl.
Í ræðu sinni fjallaði Rannveig m.a. um hvernig íslenskur efnahagur hefur staðið af sér alþjóðleg áföll í samanburði við önnur ríki innan OECD, hvaða hlutverki peningastefna og ríkisfjármál gegna í að bregðast við slíkum áföllum og áskoranir í viðleitni til að bregðast rétt við á tímum mikillar verðbólgu.
Ræðu Rannveigar má nálgast hér: Viðbrögð peningastefnu og ríkisfjármála gagnvart margþættum áföllum á heimsvísu