![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
21. apríl 2023
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2023
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki11_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2023 dagsettri 17. mars sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað um 1,00% síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða áfram 15,25% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2023.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir hækka einnig og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2023:
• Vextir óverðtryggðra útlána verða 8,75%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,65%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 5,83%
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2023