21. júní 2023
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2023
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er breyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2023 dagsettri 19. maí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá. Dráttarvextir breytast því að sama skapi og verða 16,50% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2023.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast og verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2023:
• Vextir óverðtryggðra útlána 9,25% (voru 8,75%)
• Vextir verðtryggðra útlána 2,65% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 6,17% (voru 5,83%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2023