06. júlí 2023
Fossar fjárfestingarbanki hf. fær aukið starfsleyfi
Fossar fjárfestingarbanki hf., sem er með starfsleyfi sem lánafyrirtæki samkvæmt lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, fékk hinn 3. júlí sl. auknar starfsheimildir samkvæmt lögum nr. 115/2021, um markaði fyrir fjármálagerninga. Hinar auknu starfsheimildir bankans taka til sölutryggingar í tengslum við útgáfu fjármálagerninga og/eða útboð fjármálagerninga, sbr. f-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna, og þjónustu í tengslum við sölutryggingu, sbr. d-lið 67. tölul. sömu málsgreinar.Um starfsheimildir bankans að öðru leyti vísast til yfirlits yfir starfsheimildir fjármálafyrirtækja á vef Seðlabankans.