Fundargerð peningastefnunefndar 21. og 22. ágúst 2023
Peningastefnunefnd ásamt ritaraÍ samræmi við starfsreglur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands skal birta fundargerð nefndarinnar tveimur vikum eftir að ákvörðun nefndarinnar er kynnt. Hér er því birt fundargerð fundar peningastefnunefndar 21. – 22. ágúst 2023, en á honum ræddi nefndin þróun í efnahags- og peningamálum, þróun á fjármálamörkuðum, alþjóðleg efnahagsmál og utanríkisviðskipti, innlendan þjóðarbúskap, verðbólgu og ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum.