19. september 2023
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2023
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta hefur hækkað frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2023 dagsettri 18. ágúst sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá.
Dráttarvextir breytast því að sama skapi og verða 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2023.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2023:
- Vextir óverðtryggðra útlána 9,55% - (voru 9,25%)
- Vextir verðtryggðra útlána 2,65% - (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 6,37% - (voru 6,17%)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2023.