Seðlabanki Íslands hefur uppfært skilaáætlanir fyrir kerfislega mikilvæga banka
Skilavald Seðlabanka Íslands hefur uppfært skilaáætlanir fyrir kerfislega mikilvægu bankana þrjá – Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankann. Áætlanirnar ná til framkvæmdar skilameðferðar bankanna ef til þess kæmi að fjárhagsstaða þeirra yrði svo slæm að þeir teldust vera á fallanda fæti.
Komi til falls kerfislega mikilvægs banka felur skilaáætlun í sér að mögulegt verði að endurreisa hann hratt og örugglega, án opinbers fjárstuðnings frá ríkissjóði eða Seðlabankanum. Skilameðferðin á að tryggja að almenningur og fyrirtæki hafi áfram óheftan aðgang að nauðsynlegri starfsemi (e. critical function) og styðja með því við fjármálastöðugleika í landinu.
Við uppfærslu skilaáætlananna tók skilavaldið ákvarðanir um lágmarkskröfu um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar bankanna (MREL), í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, nr. 70/2020. MREL-kröfurnar eru byggðar á lögum um skilameðferð og MREL-stefnu Seðlabankans, en þeim er ætlað að styðja við skilaáætlanirnar og tryggja að hægt verði að endurreisa banka sem er á fallanda fæti. Kerfislega mikilvægu bönkunum ber ávallt að uppfylla MREL-kröfur sem gerðar eru til þeirra.
Skilaáætlanir kerfislega mikilvægu bankanna eru unnar í samræmi við lög um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja, auk reglugerða og reglna sem settar eru á grundvelli laganna. Hver skilaáætlun byggir á mati á skilabærni viðkomandi banka en í matinu felst greining á starfsemi viðkomandi banka og rökstuðningur fyrir þeirri leið sem fara ber, ef hann fellur, með hliðsjón af markmiðum skilameðferðar. Á meðal helstu markmiða skilameðferðar er að tryggja að fall banka hafi sem minnst áhrif á viðskiptavini hans, að lágmarka hættu á að veita þurfi fjárframlög úr ríkissjóði auk þess að lágmarka neikvæðar afleiðingar fjármálaáfalls.
Nánari upplýsingar um starfsemi skilavaldsins og skilameðferð bankanna má finna á vef Seðlabankans.
Frétt nr. 17/2023
19. október 2023