25. október 2023
Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu, mæta á morgun til opins fundar efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að ræða nýjustu skýrslu peningastefnunefndar til þingsins.
Vefútsending er frá fundinum sem hefst klukkan 8:30.
Sjá hér skýrslu peningastefnunefndar til Alþingis: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis. 2023/1
Sjá nánar á vef Alþingis: Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis 26. október 2023.
Sjá hér nánari upplýsingar á vef Seðlabanka Íslands um peningastefnunefnd og störf hennar: Peningastefnunefnd