Útlánakönnun Seðlabanka Íslands
Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun á meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé og auk þess hvaða þætti þeir telji að hafi haft ráðandi áhrif á framboð á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 1. til 14. október sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara viðskiptabankanna.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að framboð viðskiptabankanna á lánum til heimila hafi verið óbreytt síðustu þrjá mánuði en að framboð þeirra á húsnæðislánum aukist lítillega á næstu sex mánuðum1. Þá gefa niðurstöðurnar til kynna að eftirspurn heimila eftir lánum hafi verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum að undanskilinni eftirspurn eftir bílalánum sem jókst lítillega. Viðskiptabankarnir gera ráð fyrir að eftirspurn heimila eftir lánum minnki lítillega á næstu sex mánuðum. Samkvæmt svörum viðskiptabankanna hafa reglur um lánveitingar til heimila verið óbreyttar á síðustu þremur mánuðum og gera þeir ráð fyrir að svo verði áfram á næstu sex mánuðum. Talið er að samkeppni frá öðrum bönkum um útlán til heimila minnki lítillega á næstu sex mánuðum. Vextir á verðtryggðum og óverðtryggðum útlánum til heimila hækkuðu á síðustu þremur mánuðum vegna hækkunar meginvaxta Seðlabankans og hærri fjármögnunarkostnaðar bankanna. Þá gera bankarnir ráð fyrir að vextir óverðtryggðra og verðtryggðra útlána hækki áfram á næstu sex mánuðum af sömu ástæðum.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að framboð lánsfjár til fyrirtækja hafi verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum og að það verði áfram óbreytt á næstu sex mánuðum. Eftirspurn fyrirtækja eftir lánsfé til skamms og langs tíma virðist hafa aukist lítillega á síðustu þremur mánuðum en allir bankarnir gera ráð fyrir að lánsfjáreftirspurn þeirra minnki á næstu sex mánuðum. Samkvæmt viðskiptabönkunum hafa engar breytingar orðið á reglum um lánveitingar til fyrirtækja á síðustu þremur mánuðum og gera bankarnir ráð fyrir að svo verði áfram á næstu sex mánuðum. Þá vænta bankarnir þess að samkeppni um útlán til fyrirtækja minnki lítillega á næstu sex mánuðum. Vextir á útlánum til fyrirtækja hækkuðu á síðustu þremur mánuðum vegna hækkunar meginvaxta Seðlabankans og hærri fjármögnunarkostnaðar bankanna og gefur könnunin til kynna að vextir og vaxtaálag á fyrirtækjalán hækki á næstu sex mánuðum.
Sjá nánar: Útlánakönnun
1Í könnuninni er lánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Lánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma-, og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um lán í erlendum gjaldmiðlum bæði fyrir heimili og fyrirtæki.