Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2023
Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2022. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2023. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2024 til næstu endurskoðunar að ári.
Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á þriggja ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:
Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
• Engin breyting á gjaldmiðlum
Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
• Suðurkóreskt vonn bætist við
• Sádiarabískt ríal dettur út
• Jamaískur dalur dettur út
• Rússnesk rúbla dettur út
Í vöruviðskiptavogum eykst vægi norsku krónunnar töluvert milli ára, en á móti minnkar vægi sterlingspunds. Í þjónustuviðskiptum eykst vægi bandaríkjadals nokkuð en á móti dregur úr vægi sænsku krónunnar. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar, en þar eykst vægi norsku krónunnar mest en einnig eykst vægi bandaríkjadals nokkuð. Vægi sterlingspunds minnkar mest milli ára.
Sjá ennfremur: Endurskoðun á gjaldmiðlavogum - fyrri ár.