19. janúar 2024
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2024
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2023 dagsettri 19. desember sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 29. febrúar 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 29. febrúar 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 9,60% - (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 6,40% - (óbreyttir)
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2024