08. febrúar 2024
Afsal GAMMA Capital Management hf. á starfsleyfi
Í framhaldi af ósk GAMMA Capital Management hf. um afsal á starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 18. gr. laga nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfða sjóða afturkallaði fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leyfi félagsins hinn 2. febrúar 2024.Á síðustu árum hafa sjóðir um sameiginlega fjárfestingu í rekstri hjá félaginu ýmist lokið starfsemi sinni og þeim verið slitið eða rekstur þeirra verið færður til tengds félags, Kviku eignastýringar hf. Félagið stundar því ekki lengur leyfisskylda starfsemi.