20. febrúar 2024
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2024
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 01/2024 dagsettri 19. janúar sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 9,45% - (voru 9,60%)
- Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 6,30% - (voru 6,40%)