![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
28. febrúar 2024
Fjármálaeftirlit 2024
![](/library/Ljosmyndir_ISL/Forsidur_ISL/Frett%20-%20Fjarmaleftirlit%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=AdalmyndFrett)
Ritið Fjármálaeftirlit 2024 hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu Fjármálaeftirlits leitast Seðlabankinn við að tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur bankans á sviði fjármálaeftirlits.
Í ritinu er skýrt frá því hvernig bankinn vann á árinu 2023 að þeim verkefnum sem fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eru falin í lögum auk þess sem upplýst er um helstu áherslur í fjármálaeftirliti í ár. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.
Sjá hér: Fjármálaeftirlit 2024