11. mars 2024
Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar í febrúar 2024
Fundargerð frá aukafundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 21. febrúar 2024 hefur verið birt. Á fundinum fjallaði nefndin um þær sérstöku aðstæður sem uppi voru í Grindavík þar sem búseta í bænum var óheimil vegna náttúruvár. Nefndin ákvað að hækka hámark greiðslubyrðar í 40% af ráðstöfunartekjum og hámark veðsetningarhlutfalls í 85% fyrir einstaklinga, sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023, við næstu kaup þeirra á íbúðarhúsnæði.
Sjá nánar: Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Febrúar 2024 (20. Fundur). Birt. 11. mars 2024.