![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
27. mars 2024
Uppfærðir og nýir Hagvísar birtir
![](/library/Ljosmyndir_ISL/Forsidur_ISL/Frett%20-%20Hagvisar.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Nýjar og uppfærðar tölur hafa verið birtar í Hagvísum hér á vef bankans.
Í Hagvísum Seðlabanka Íslands, sem birtir hafa verið frá árinu 2002, er birt yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins í tíu köflum. Í gagnvirkum Hagvísum er notendum gert kleift að nálgast og rýna gögnin með því t.d. að fletta á milli mynda, velja staka mynd til frekari skoðunar, breyta tímaás og hlaða niður gögnum.
Sjá hér: Hagvísar Seðlabanka Íslands 27. mars 2024.
Sjá einnig hér: Hagvísar og fleiri rit og gögn