10. apríl 2024
Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar kynnt í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2023 verður kynnt og til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, fimmtudaginn 11. apríl 2024, klukkan 8:30. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika verða gestir á fundinum.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás þingsins.
Nánari upplýsingar eru aðgengilegar á vef Alþingis og hér vef Seðlabankans:
- Upplýsingar á vef Alþingis um opinn kynningarfund um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2023.
- Sjá einnig á forsíðu á vef Alþingis: Forsíða Alþingisvefjarins.
- Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2023.
- Sjá hér ýmislegt efni um fjármálastöðugleika: Fjármálastöðugleiki.