17. maí 2024
Niðurstöður könnunar- og matsferlis hjá fjórum sparisjóðum
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands leggur mat á áhættuþætti í starfsemi fjármálafyrirtækja í könnunar- og matsferli (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP) og með hvaða hætti fjármálafyrirtæki meðhöndlar þá í starfseminni, sbr. lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.Fjármálaeftirlitið hefur lokið könnunar- og matsferli hjá Sparisjóði Austurlands hf., Sparisjóði Höfðhverfinga ses., Sparisjóði Strandamanna ses. og Sparisjóði Suður-Þingeyinga ses. Matið laut að stjórnarháttum og rekstraráhættu í starfsemi sparisjóðanna. Gagnsæistilkynningar og niðurstöður fylgja hér á eftir hjá þeim þremur sparisjóðum þar sem koma þurfti athugasemdum á framfæri og gera viðeigandi úrbótakröfur.
Sjá nánar:
Niðurstöður könnunar- og matsferlis hjá Sparisjóði Austurlands hf.
Niðurstöður könnunar- og matsferlis hjá Sparisjóði Höfðhverfinga ses.
Niðurstöður könnunar- og matsferlis hjá Sparisjóði Suður-Þingeyinga ses.