![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
19. júní 2024
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2024
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_3.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 05/2024 dagsettri 21. maí sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. júlí 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 3,75% (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,97% (óbreyttir)
Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2024