![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
28. júní 2024
Virkur eignarhlutur í Rapyd Europe hf.
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/Sedlabanki_hus_11.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Hinn 21. júní sl. komst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands að þeirri niðurstöðu að Target Global Holding Ltd. og Yaron Valler væru, í samstarfi við önnur félög sem rekin eru undir merkjum Target, hæfir til að fara með allt að 20% óbeinan, virkan eignarhlut í Rapyd Europe hf., sbr. 14. gr. laga nr. 17/2013, um útgáfu og meðferð rafeyris, og VI. kafla laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.