logo-for-printing

02. júlí 2024

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2024 er nú aðgengileg á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið þrjá reglulega fundi, síðast 8. maí 2024, og einn aukafund. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2024.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2024

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar má finna hér: Skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis
Til baka