logo-for-printing

18. júlí 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 06/2024 dagsettri 19. júní sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. ágúst 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2024:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% (óbreyttir)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,75% (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,97% (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2024

 
Til baka