logo-for-printing

19. ágúst 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2024

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 07/2024 dagsettri 19. júlí sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans eftir það.
Dráttarvextir eru að sama skapi óbreyttir og verða því áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2024:

• Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,75% (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 5,97% (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2024.


Til baka