logo-for-printing

28. ágúst 2024

Útlánakönnun Seðlabanka Íslands

Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun á meðal viðskiptabankanna fjögurra. Spurt er um mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé og auk þess hvaða þætti þeir telji að hafi haft ráðandi áhrif á framboð á síðustu þremur mánuðum. Einnig er spurt um væntingar viðskiptabankanna um horfur næstu sex mánuði. Könnunin var síðast framkvæmd 1. júlí til 16. ágúst sl. og eru niðurstöðurnar hér byggðar á meðaltali svara viðskiptabankanna.

Helstu niðurstöður

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að framboð bankanna á húsnæðislánum til heimila hafi lítið breyst á síðustu þremur mánuðum og að lítilla breytinga sé að vænta á framboði þeirra á lánum til heimila á næstu sex mánuðum. Viðskiptabankarnir greindu aukningu í eftirspurn heimila eftir íbúðalánum á síðustu þremur mánuðum en lítilsháttar samdrátt í eftirspurn eftir bílalánum og gera bankarnir ráð fyrir svipaðri þróun á næstu sex mánuðum.1 Samkvæmt svörum viðskiptabankanna hafa reglur um veitingu útlána til heimila ekki breyst á síðustu þremur mánuðum en gert er ráð fyrir að útlánareglur húsnæðislána verði þrengdar lítillega á næstu á næstu sex mánuðum. Talið er að samkeppni um útlán til heimila muni aukast á næstu sex mánuðum, bæði meðal bankanna og annarra aðila á lánamarkaði. Bankarnir greina frá því að vextir á verðtryggðum útlánum til heimila hafi hækkað lítillega á síðustu þremur mánuðum og er gert ráð fyrir álíkri þróun á næstu sex mánuðum auk þess sem væntingar eru um að vaxtaálag slíkra lána muni einnig hækka lítillega. Samkvæmt svörum bankanna lækkuðu vextir á óverðtryggðum útlánum til heimila lítillega á síðustu þremur mánuðum vegna lægri fjármögnunarkostnaðar þeirra. Jafnframt er gert ráð fyrir því að óverðtryggðir vextir lækki áfram á næstu sex mánuðum vegna væntinga um lægri fjármögnunarkostnað og meginvexti Seðlabankans.

Samkvæmt svörum bankanna hefur framboð lánsfjár til fyrirtækja verið óbreytt á síðustu þremur mánuðum en þeir gera ráð fyrir lítilsháttar aukningu framboðs útlána í íslenskum krónum á næstu sex mánuðum. Bankarnir greindu nær óbreytta eftirspurn fyrirtækja eftir lánum á síðustu þremur mánuðum en búast við lítilsháttar aukinni eftirspurn lána í íslenskum krónum á næstu sex mánuðum. Reglur bankanna um lánveitingar til fyrirtækja hafa verið rýmkaðar lítillega á síðustu þremur mánuðum samkvæmt könnuninni og gera þeir ráð fyrir sambærilegri þróun á næstu sex mánuðum. Þá vænta þeir þess að samkeppni um fyrirtækjaútlán milli bankanna aukist á næstu sex mánuðum. Vextir útlána til minni fyrirtækja hækkuðu lítillega á síðustu þrem mánuðum en vaxtaálag á útlán til stærri fyrirtækja lækkaði. Breytingar í fjármögnunarkostnaði bankanna voru í báðum tilvikum nefndar sem áhrifaþáttur. Á næstu sex mánuðum búast bankarnir við því að útlánavextir fyrirtækjalána lækki og að vaxtaálag á útlánum til stærri fyrirtækja muni einnig lækka lítillega. Helstu áhrifaþættir eru væntingar um þróun fjármögnunarkostnaðar bankanna og meginvaxta Seðlabankans.

Sjá nánari upplýsingar um niðurstöður könnunar og fleira hér: Útlánakönnun

1Í könnuninni er lánum til heimila skipt upp í húsnæðislán, bílalán og önnur lán. Lánum til fyrirtækja er skipt upp í langtíma- og skammtímalán. Jafnframt er spurt sérstaklega um lán í erlendum gjaldmiðlum bæði fyrir heimili og fyrirtæki.

Til baka