20. september 2024
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 09/2024
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.
Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 08/2024 dagsettri 19. ágúst sl. þar sem að meginvextir bankans eru óbreyttir síðan þá.
Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2024.
Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2024:
- Vextir óverðtryggðra útlána 8,95% (óbreyttir)
- Vextir verðtryggðra útlána 3,75% (óbreyttir)
- Vextir af skaðabótakröfum 5,97% (óbreyttir)