logo-for-printing

07. október 2024

Sjálfbærniskýrsla Seðlabankans fyrir árið 2023

Seðlabanki Íslands hefur gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir starfsemi sína á árinu 2023. Sjálfbærniskýrslan er árleg útgáfa sem ætlað er að styðja við það markmið bankans að ná frekari árangri á sviði sjálfbærni.

Sjálfbærniskýrslan inniheldur sjálfbærniupplýsingar úr rekstri bankans ásamt því að greina frá því hvernig bankinn innleiðir loftslagsmál og sjálfbærni í kjarnastarfsemi sína. Þá er reifað hvernig bankinn miðlar upplýsingum og styður við innleiðingu á sjálfbærni fyrir þá starfsemi sem hann hefur eftirlit með.

Sjá hér: Sjálfbærniskýrsla 2023

 


Til baka