29. október 2024
Breyting á félagaformi Sparisjóðs Strandamanna
Hinn 24. október sl. samþykkti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands samruna Sparisjóðs Strandamanna ses. við Sparisjóð Strandamanna hf. Með samrunanum var rekstrarformi sparisjóðsins breytt úr sjálfseignarstofnun í hlutafélag samkvæmt 73. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. 3. mgr. 72. gr. og 106. gr. sömu laga.
Við breytinguna hélt starfsleyfi sparisjóðsins gildi sínu og Sparisjóður Strandamanna hf. tók við rekstri Sparisjóðs Strandamanna ses., öllum eignum hans og skuldum, réttindum og skuldbindingum og var sjálfseignarstofnuninni slitið. Samruninn mun ekki hafa áhrif á greiðslustað skuldaskjala.